Grunnskóli

29. fundur
Þriðjudaginn 08. nóvember 1994, kl. 14:54:54 (1311)


[14:54]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þetta svar. Ég tel að það sé alveg nægilega skýrt miðað við stöðu málsins og treysti því að við reynum að finna lausn á því máli í hv. menntmn. hvernig búið verður um hnútana að því er sérkennsluna varðar.