Lyfjalög

30. fundur
Miðvikudaginn 09. nóvember 1994, kl. 13:53:20 (1351)


[13:53]
     Frsm. heilbr.- og trn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingu á lyfjalögum. Þetta frv. var flutt til staðfestingar á útgáfu bráðabirgðalaga frá því í sumar. Málið hefur verið rætt á tveimur fundum í hv. heilbr.- og trn., fyrst í sumar í sambandi við útgáfu bráðabirgðalaganna og svo nú eftir að frv. hafði komið til 1. umr.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir það rita allir hv. nefndarmenn hv. heilbr.- og trn.