Vegaframkvæmdir á Austurlandi

31. fundur
Miðvikudaginn 09. nóvember 1994, kl. 15:32:50 (1378)


[15:32]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ráðherrann kom sér hjá því að svara spurningu minni um hvenær hann ætlaði að leggja til að yrðu hafnar endurgreiðslur á því fjármagni sem var lagt til átaksverkefnana. Hvað flóabátana varðar, það er nú dálítið einkennileg hornspyrna vegna þess að mér er ekki kunnugt um að hv. þm. Sjálfstfl. hafi barist sérstaklega gegn kaupum þessara flóabáta á sínum tíma. Það er auðvitað ljóst að þessar skuldir þarf að greiða. Ég get lýst því yfir að mér finnst þetta fyrirkomulag sem nú er, að taka þetta yfir á Vegasjóð, ekkert óskynsamlegt, en það verður auðvitað að reikna með því fjármagni sem það kostar og það verður ekki notað til annarrar vegagerðar. Við á Austurlandi höfum a.m.k. ekki stofnað til þessara skulda í þessum flóabátum.