Guðmundur H. Garðarsson fyrir BBj

32. fundur
Fimmtudaginn 10. nóvember 1994, kl. 10:35:42 (1414)



     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 9. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi, taki 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson, fyrrv. alþm., sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Björn Bjarnason, 3. þm. Reykv.``



    Þá hefur enn fremur borist eftirfarandi bréf, dags. 9. nóv. 1994, til forseta Alþingis:
    ,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Björns Bjarnasonar, 3. þm. Reykv., nú í tvær vikur sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
Virðingarfyllst, Þuríður Pálsdóttir.``



    Guðmundur H. Garðarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.