Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1993

32. fundur
Fimmtudaginn 10. nóvember 1994, kl. 17:01:38 (1466)


[17:01]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þessari reglugerð var breytt. Þetta er ársskýrsla fyrir 1993 og reglugerð um stofnunina verður að birtast eins og hún á að vera fyrir það ár þannig að menn viti eftir hvaða reglum var farið þegar um þetta mál var fjallað. Þessu var breytt í samráði við hv. 1. þm. Vestf. og ég veit ekki til að nokkur sé óánægja með þessa breytingu. A.m.k. hefur hann ekki gert athugasemd við mig þannig að ég stóð við þau orð sem hann sagði hér í þingræðu.