Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 14. nóv. 1994:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Jón Gunnarsson, getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi, taki 2. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Gizur Gottskálksson læknir, Garðabæ, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Þá hefur borist bréf, dags. í Vogum 2. nóv. 1994, til forseta Alþingis:
,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Petrínu Baldursdóttur næstu tvær vikur sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi.
Loks hefur borist enn eitt bréf, dags. 11. nóv. 1994:
,,Þar sem ég vegna aðkallandi starfa get ekki setið lengur á Alþingi í veikindaforföllum Jónu Valgerðar Kristjánsdóttur, 6. þm. Vestf., fer ég fram á að Björk Jóhannsdóttir kennari, Hólmavík, 2. varaþm. Samtaka um kvennalista í Vestfjarðakjördæmi, taki sæti á Alþingi.
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.