[13:43]
Frsm. kjörbréfanefndar (Matthías Bjarnason) :
Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur fengið til athugunar kjörbréf Gizurar Gottskálkssonar, sem er 2. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, og kjörbréf Bjarkar Jóhannsdóttur, sem er 2. varaþm. Samtaka um Kvennalista í Vestfjarðakjördæmi. Kjörbréf þessi eru gefin út 2. nóv. sl. og undirrituð af öllum landskjörstjórnarmönnum.
Fyrir lá bréf frá Jóni Gunnarssyni, sem er 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, þess efnis að vegna sérstakra anna geti hann ekki tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.
Kjörbréfanefnd hefur lokið athugun sinni og telur kjörbréfin gild og mælir með því að þau verði samþykkt.