Breytingar á ríkisstjórninni

33. fundur
Þriðjudaginn 15. nóvember 1994, kl. 13:54:31 (1483)


[13:54]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég get einungis svarað því þannig: Það hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að nokkur þm. Alþfl. hafi látið af stuðningi sínum við ríkisstjórnina heldur þvert á móti hafa menn ítrekað í viðtölum við mig og við aðra stuðning við þessa stjórn og vilja Alþfl. til þess að henni verði fram haldið a.m.k. fram að næstu kosningum.