[15:39]
Sigbjörn Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þm. Guðna Ágústssonar þá er það svo og rétt að hafa í huga að sú ríkisstjórn sem nú situr kom á hátekjuskatti. Þeirri ríkisstjórn, sem áður sat og hv. þm. var stuðningsmaður að, auðnaðist það ekki. Við vitum að það var þessi ríkisstjórn sem kom þeim skatti á og hann á að vera áfram en ég undrast í sjálfu sér það geðleysi Framsfl. í fyrri ríkisstjórn að þessum skatti skyldi ekki á komið.