Náttúruvernd

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 11:14:03 (1574)


[11:14]
     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hv. þm. er með útúrsnúninga af því að hann er í miklum vandræðum með þetta mál. Hann fór í pontu og tók að sér að verja hæstv. landbrh. en nú er hann kominn í mikil vandræði af því að hann veit að hann getur ekki varið hans málflutning í þessu máli því að hv. 5. þm. Norðurl. e. er mikill náttúruverndarsinni, það veit ég. En hann getur ekki varið það að hæstv. landbrh. vill stríð um þessi mál.