[13:54]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hinn ágæti þingmaður Vestfirðinga, hv. þm. Pétur Bjarnason, nefnir hér til sögunnar Grímsey og Einar Þveræing. Það rifjar upp hina ágætu vísu:
Þú varst fyrr af mönnum metin
meira en eyðisker.
Kóngar úti í öðrum löndum
ágirnd fengu á þér.
Einn þá sendi biðilsbréfið
beina leið á þing,
þá var happ að Ísland átti
Einar Þveræing.
Nú er það svo, virðulegi forseti, að Íslendingar hafa eignast sinn Einar Þveræing. Hins vegar er þó hér einungis verið að deila um tvö eyðisker en Grímsey var þó meira vegna þess að við erum einungis að ræða hér um tvær eyjar, tvö lítil sker, en hins vegar er um að ræða 2.500 eyjar sem fulltrúar hinna svæðanna standa fyrir.
En ég ítreka það bara: Það getur vel verið að það hafi verið ámælisvert að það hafi ekki verið leitað til þeirra. Ef það er það ámælisverðasta sem þessi ráðherra hefur gerst ber að, þá þakka ég drottni mínum. En ég lýsi því aftur yfir: Ég vil ná góðri sátt við hinn nýja Einar Þveræing Vestfirðinga í þessu máli.