Útflutningur hrossa

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 16:13:28 (1621)

[16:13]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Frv. um útflutning hrossa var flutt á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga í heild sinni. Þá var einungis samþykkt lítils háttar rýmkun á þeim tíma sem heimilt er að flytja hross til útlanda með skipum.
    Frv. er nú endurflutt nokkuð breytt. Athugasemdir komu fram um frv. á síðasta þingi frá hrossaútflytjendum og fyrrum dýralækni, Páli A. Pálssyni, og hefur verið tekið tillit til þeirra athugasemda.
    Lög um útflutning hrossa eru frá árinu 1958. Þeim hefur verið breytt lítillega fjórum sinnum, síðast í fyrra með lögum nr. 41/1994. Við fyrri lagabreytingar hefur því verið beint til ráðuneytisins að lögin verði endurskoðuð í heild sinni. Það hefur nú verið gert og er frv. unnið í samráði við Kristin Hugason hjá Búnaðarfélaginu, Halldór Gunnarsson hjá Félagi hrossabænda, hrossaútflytjendur og yfirdýralækni.
    Frv. var lagt fyrir búnaðarþing 1994 sem mælti með samþykkt þess. Búnaðarþing gerði athugasemdir við nokkur atriði í frumvarpsdrögunum og hefur verið tekið tillit til þeirra í því frv. sem hér er lagt fram.
    Með frv. er reynt að einfalda reglur um útflutning á hrossum og koma til móts við þá öru þróun sem orðið hefur á síðustu árum. Útflutningur hrossa hefur aukist mikið og er nú veigamikill þáttur í tekjuöflun hrossaræktarinnar. Á síðasta ári voru flutt út rúmlega 2.400 hross en fyrir tíu árum voru flutt út 250--300 hross ár hvert. Með þessu frv. er reynt að koma til móts við þessa breytingu án þess að slaka á þeim kröfum sem gerðar hafa verið. Gildir það um aðbúnað í flutningsfari, eftirlit með heilbrigði hrossa og tryggingu fyrir að innlendir ræktendur hafi forkaupsrétt á úrvalskynbótadýrum. Þá er ákvæðum um gjaldtöku fyrir útflutt hross breytt verulega og í leiðinni er reynt að efla markaðsstarf í öðrum löndum. Helstu breytingar og nýmæli sem frv. felur í sér eru eftirfarandi:
    Landbrh. til ráðuneytis verður skipuð fimm manna útflutnings- og markaðsnefnd og eiga Búnaðarfélagið, Félag hrossabænda, yfirdýralæknir og hrossaútflytjendur fulltrúa í nefndinni en ráðherra skipar formann án tilnefningar. Hlutverk nefndarinnar verður margþætt en einna helst að vera ráðgefandi um málefni er snerta útflutning á hrossum. Ekki er lengur gerð krafa um útflutningsleyfi fyrir hross heldur einungis upprunavottorð og heilbrigðisskoðun. Eina undantekning frá því eru úrvalskynbótahross en innlendur ræktendur hafa tímabundinn forkaupsrétt á þeim. Hrossaræktarnefnd Búnaðarfélags Íslands metur árlega hvað telst úrvalskynbótagripur. Breytt er reglum um heilbrigðisskoðun á útflutningshrossum þannig að hún getur að hluta farið fram í heimabyggð en ekki einungis í útflutningshöfn eins og nú tíðkast. Nánar verður kveðið á um framkvæmd í reglugerð en þessi breyting verður til hagsbóta fyrir þá útflytjendur sem búa fjarri útflutningshöfn. Ekki verður slakað á kröfum um aðbúnað og öryggi en í frv. er gert ráð fyrir að rýmka þann tíma sem heimilt er að flytja hross með skipum. Mikil breyting til batnaðar hefur orðið í öllum tæknibúnaði og flutningsför eru nú mun öruggari en áður.
    Gert er ráð fyrir að innheimta fast gjald á hvert útflutt hross. Hér er gerð tillaga um að upphæð gjaldsins verði að hámarki 8 þús. kr. og það renni í sérstakan sjóð í vörslu landbrn. Sjóður þessi skuli standa undir kostnaði við útgáfu upprunavottorðs sem unnið er upp úr skýrsluhaldi Búnaðarfélags Íslands og undir kostnaði við lögbundna heilbrigðisskoðun á útflutningshrossum. 5% af innheimtu gjaldi skal renna í stofnun verndarsjóðs íslenska hestakynsins, 15% í búnaðarmálasjóð og eftirstöðvum hvers árs verður úthlutað til markaðsmála. Gjaldtaka af útfluttum hrossum er nú með þeim hætti að útflytjendur greiða sjálfir fyrir upprunavottorð 55 þýsk mörk og fyrir dýralæknisskoðun um það bil 2 þús. kr. Þess fyrir utan er greitt í stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins og sjóðagjöld. Verði þetta frv. að lögum verður hætt sérstakri innheimtu til stofnverndarsjóðs og búnaðarmálasjóðs.
    Ég legg til, hæstv. forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og landbn.