Rannsóknarráð Íslands

37. fundur
Föstudaginn 18. nóvember 1994, kl. 16:13:39 (1704)


[16:13]
     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Mér finnst rétt að það komi fram að ég styð þetta frv. og mun beita mér fyrir því eins og ég get að það geti orðið að lögum á þessu þingi þó að það sé í andstöðu við hæstv. menntmrh. og fleiri sjálfstæðismenn.