Guðný Guðbjörnsdóttir fyrir KE

38. fundur
Mánudaginn 21. nóvember 1994, kl. 15:08:20 (1709)



     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 18. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að vegna sérstakra anna 1. varaþingsmanns Samtaka um kvennalista í Reykjavík taki 2. varaþingmaður Samtaka um kvennalista, Guðný Guðbjörnsdóttir uppeldissálfræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Kristín Einarsdóttir, 10. þm. Reykv.``



    Guðný Guðbjörnsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.