Sjóður til að styrkja efnilega íþróttamenn

39. fundur
Mánudaginn 21. nóvember 1994, kl. 17:12:33 (1765)


[17:12]
     Jóhann Ársælsson :
    Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra spurði mig um það hvort flokkurinn mundi segja sig úr hinu Evrópska efnahagssvæði. ( Gripið fram í: Það er sjálfdautt.) Það er nú, eins og hér kemur fram í frammíkalli, að verða sjálfdautt og þeir sem ákváðu að þetta yrði samþykkt í hv. Alþingi og komu því fram, hamast nú við að lýsa því yfir að það sé dautt. Ég held reyndar að það hljóti allir skynsamir menn að sjá að það tekur því ekki að segja sig frá líkinu og menn verða þá bara að reyna að finna sér einhvern annan farkost heldur en þennan og það mun Alþb. auðvitað standa að að gera.