[17:57]
Finnur Ingólfsson :
Virðulegi forseti. Þegar hæstv. fjmrh. reiknar út að slík breyting sem hv. 5. þm. Reykv. spyr um varðandi hækkun skattleysismarka fyrir 67 ára og eldri sé um 1 milljarð kr. í viðbótarútgjöldum fyrir ríkissjóð þá er það beinn útgjaldaauki af aðgerðinni sem slíkri, ef ég hef skilið hæstv. fjmrh. rétt. ( Fjmrh.: Það eru minni tekjur.) Það er hárrétt, hæstv. fjmrh., það eru minni tekjur en þegar slíkir útreikningar eru gerðir þá er það grundvallaratriði að menn reikni út hvaða áhrif slíkt hafi til hugsanlegs sparnaðar í almannatryggingakerfinu þar sem slíkt getur haft talsverð áhrif þar. Það skiptir höfuðmáli hvaða tekjuviðmiðun menn munu síðan setja upp í almannatryggingakerfinu þegar þessum hópi sem nýtur þar bóta hefur sérstaklega verið lyft í skattleysismörkum.
Ég tek að mörgu leyti undir það með hv. fyrirspyrjanda að ef menn hafa mismunandi upphæð persónuafsláttar eftir aldurshópum þá getur slíkt virkað til tekjujöfnunar í samfélaginu. Menn gætu beitt persónuafslættinum til tekjujöfnunar.