[18:23]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Í frv. sem ég kynnti hér á Alþingi sl. vor, sem fól í sér að gerðar yrðu miklar skipulagsbreytingar á yfirstjórn lögreglunnar, var m.a. gert ráð fyrir því að komið yrði á fót sérstökum samstarfsnefndum lögreglu og viðkomandi sveitarfélaga til að taka á lögregluverkefnum þar sem það er augljóst að góð samvinna sveitarstjórna og lögreglu er oft mjög mikilvæg til að skipuleggja megi lögreglustarfið með sem bestum árangri. Þetta frv. gerði enn fremur ráð fyrir því að færa ýmis verkefni til héraðslögreglusveitanna í landinu. Það var gert ráð fyrir að koma á fót ríkislögreglustjóraembætti til að hafa á hendi yfirstjórn lögreglu en um leið að leggja niður rannsóknarlögreglu og færa meginhlutann af þeim verkefnum út til einstakra lögregluembætta og gera þannig ráð fyrir því að lögregla í viðkomandi héraði eða sveitarfélagi geti tekist á við fleiri verkefni af því tagi.
Það orkar hins vegar að minni hyggju nokkuð tvímælis að taka um það ákvörðun að skipta lögregluliðinu í landinu í tvennt, annars vegar í ríkislögreglu og hins vegar í sveitarfélagalögreglu. Við höfum mjög lítið lögreglulið og ég tel að við þurfum að samhæfa krafta þess. Á hinn bóginn er það ljóst að samvinna lögreglu og sveitarstjórna er mjög mikilvæg og ég tel að með nýskipan lögreglumála sé unnt að koma þessari samvinnu við.
Hv. þm. minntist sérstaklega á lögregluverkefni hér í höfuðborginni. Þar hefur verið komið upp grenndarlögreglustöðvum í einstökum hverfum. Sl. föstudag var tekin í notkun ný lögreglustöð í Grafarvoginum. 1989 var tekin í notkun lögreglustöð í Breiðholti og borgaryfirvöld aðstoðuðu við það. Nú hafa borgaryfirvöld lýst yfir góðum vilja til að aðstoða við útvegun húsnæðis fyrir lögreglu í Árbæ. Þetta starf hefur skilað mjög miklum árangri og ég tel að áhugi borgaryfirvalda í þessu efni hafi verið lofsverður.
Lögreglan telur til að mynda að frá árinu 1989 hafi afbrotum í Reykjavík fækkað um 16% í Breiðholti, um 24% á Seltjarnarnesi og um 13% í Mosfellsbæ. En á öllum þessum stöðum eru það sem kallað hefur verið grenndarlögreglustöðvar. Það hefur verið eitt af skilgreindum markmiðum lögreglunnar í Reykjavík að auka löggæslu á þessu svæði og lögreglan telur að sú starfsemi hafi þegar skilað verulegum árangri. Ég held að aðalatriðið í þessu efni sé að hafa vel skipulagða og skilvirka löggæslu. Það hefur tekist að koma þessum grenndarlögreglustöðvum upp á höfuðborgarsvæðinu án aukinna útgjalda. Það hefur verið gert með endurskipulagningu innan lögregluliðsins og á þessu sviði eins og öðrum skiptir miklu máli að menn hugi að því að ná fram betri nýtingu og skilvirkara starfi með endurskipulagningu og það sýnir sig á þessu sviði eins og víða annars staðar að slíkur árangur hefur náðst.
Þetta eru í meginatriðum þau viðhorf sem liggja til grundvallar þeirri stefnumörkun sem nú er í framkvæmd.