Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 18. nóv. 1994:
,,Þar sem ég vegna sérstakra persónulegra ástæðna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varamaður Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi taki 2. varamaður, Valgerður Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari, Reykjavík, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Þá er hér annað bréf til forseta, dags. í Reykjavík 21. nóv. 1994:
,,Undirritaður, 1. varaþingmaður Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi getur ekki vegna anna og utanferðar tekið sæti Össurar Skarphéðinssonar umhvrh. á Alþingi frá 22. nóv. 1994 að telja. Óska ég eftir að Valgerður Gunnarsdóttir, 2. varamaður Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi taki sæti í hans stað.
Valgerður Gunnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.