[15:02]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þessi athugasemd hv. 5. þm. Vestf. er út af fyrir sig athyglisverð en ég er þeirrar skoðunar að það beri að draga frekar úr starfsemi Húsnæðisstofnunar en hitt og það er út af fyrir sig mjög alvarleg yfirlýsing frá stjórnarmanni að ég best veit í stjórn Húsnæðisstofnunar ef það er mat Húsnæðisstofnunar að það sé ekki hægt að treysta bönkunum fyrir þessu greiðslumati. Það er mjög merkileg yfirlýsing. Ég hef hins vegar haft þá bjargföstu skoðun að það ætti að leggja Húsnæðisstofnun niður, það ætti að fela bankakerfinu að lána húsnæðislán í auknum mæli en á meðan það er ekki verður stofnunin að geta sinnt sínu hlutverki. Ég held að það sé mun mikilvægara að Húsnæðisstofnun beiti sér þá fyrir því gagnvart bönkunum að bæta úr þessari vinnu á vegum bankanna þannig að þeim sé hægt að treysta fremur en að farið verði að fjölga mikið starfsmönnum Húsnæðisstofnunar. Húsnæðisstofnun er hér í Reykjavík og ég er sannfærður um það að Vestfirðingar mundu fagna því ef þeir gætu leitað til sinna lánastofnana á Vestfjörðum eða á Vesturlandi, til sparisjóðanna, til útibúa bankanna fremur en þurfa að fara þá þrautagöngu að fara til Reykjavíkur og bíða þar á biðstofum eftir ráðgjöfum sem vinna fyrir Húsnæðisstofnun. Ég tel því að besti kosturinn væri sá að Húsnæðisstofnun leitaði eftir auknu samstarfi við bankana því að þetta er vissulega mikið vandamál eins og kom hér fram hjá hv. 9. þm. Reykv., ég vil ekki á nokkurn hátt draga úr því. En skipulag þessara mála þarf að vera þannig að það þjóni lántakendum, þjóni þeim sem leita eftir þjónustu við Húsnæðisstofnun.