Greiðsluaðlögun húsnæðislána

40. fundur
Þriðjudaginn 22. nóvember 1994, kl. 16:35:08 (1846)


[16:35]
     Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Já, ég tjáði mig um það að ég mundi eiga viðræður við alla þá aðila sem vilja koma til liðs við þau mál sem ég er að vinna að og á þar bæði við verkalýðshreyfinguna og aðra, en það er algjör óþarfi hjá þingmanninum að gera tilraun til að túlka orð mín í einhvern ákveðinn farveg annan en þann að ég mun eiga viðræður við allmarga aðila án þess að hafa lýst neinu yfir hvort ég ætla að fara í samninga við einn eða neinn um eitt eða neitt. En það er alveg ljóst að ég, eins og fyrirrennarar mínir, er alveg tilbúin til og hef það að markmiði að gera það besta í þessum vanda sem er búinn að vera um nokkra hríð.