Málefni Iðnlánasjóðs

41. fundur
Miðvikudaginn 23. nóvember 1994, kl. 13:48:18 (1869)


[13:48]
     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra svaraði ekki hinni fyrri fyrirspurn minni um iðnlánasjóðsgjaldið. En ég hafði ekki fregnir af því að þetta álit umboðsmanns væri komið fram. Ég ætla ekki að rengja það. En í þessari sömu frétt kom það glöggt fram að aðili málsins taldi að á sér væri verið að brjóta stjórnsýslulög. Og hann þyrfti að fá þetta fram til að vita hvort Iðnlánasjóður væri bótaskyldur. Ég vil fara nánar yfir þessar upplýsingar, hvort það á við rök að styðjast hjá hæstv. viðskrh. að þetta álit umboðsmanns sé komið fram. En ég vænti þess að hann svari hinu síðara atriði.