Málefni Iðnlánasjóðs

41. fundur
Miðvikudaginn 23. nóvember 1994, kl. 13:50:35 (1872)


[13:50]
     Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Það er hægt að spyrja ráðherra margs í óundirbúnum fyrirspurnum. En að spyrja ráðherra að því í óundirbúnum fyrirspurnum hvaða styrki Iðnlánasjóður hafi veitt á liðnu ári er svolítið langt seilst. Ég mundi vísa hv. þm. á að leggja fram fyrirspurn á Alþingi um þessi mál og ég mun þá leita eftir því að fá henni svarað með eðlilegum hætti. En þó sá viðskrh. sem hér stendur sé vel að sér þá kann hann ekki utan (Gripið fram í.) að allar hugsanlegar styrkveitingar, hvað þá heldur lánveitingar þeirra sjóða, lánasjóða og stofnana sem undir hann heyra.