Svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum

41. fundur
Miðvikudaginn 23. nóvember 1994, kl. 14:14:54 (1890)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Eins og hv. þm. sagði sjálfur í upphafi þá er þetta ekki um fundarstjórn forseta en út af orðum hv. þm. þá vill forseti segja það að þannig er það ávallt að einhver verður að hafa síðasta orðið. Þetta eru þau þingsköp sem Alþingi hefur samþykkt og þau gilda í dag. En hitt er annað mál að þau eru alltaf til endurskoðunar.