Vinnudeila ríkisins og sjúkraliða

41. fundur
Miðvikudaginn 23. nóvember 1994, kl. 15:54:43 (1908)


[15:54]
     Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Hæstv. forseti. Ég var víst nokkuð seinn með að koma með litla athugasemd. En ég fékk síðan leyfi til þess og ég ætla ekki að misnota það. Það er ekki verið að tala fyrir mínar skoðanir eða mína stefnu eða minn flokk, held ég, þegar ýmislegt af því sem er verið að segja hér um það að það séu nokkurn veginn sömu kjör eins og hérna og þetta geti komið einhvern tíma og einhvern tíma. Í þessu máli eins og það leggst fyrir núna er ekki hæstv. fjmrh. minn ráðherra. Svo einfalt er það.