[12:11]
Ingi Björn Albertsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Þetta var eiginlega ekki andsvar þetta voru frekar undirtektir við ræðu mína hjá hv. þm. nema kannski það síðasta sem hv. þm. sagði að hún vildi ekki banna Tomma og Jenna. Ég vil þá biðja hv. þm. að koma hér upp og skilgreina ofbeldi fyrir mér og þingheimi. Hvað er ofbeldi í hennar huga eða hennar flokks? Er það eingöngu leikrænt eða má það vera myndrænt og teiknað? Það er alveg sama fyrirmyndin fyrir fólk. Og menn geta horft á tæknina í dag þar sem við getum farið að teikna upp fólk þannig að það þekkist ekki frá lifandi verum. Hver er munurinn í huga hv. þm.? Hver er munurinn á ofbeldi í teiknimyndum eða leiknum myndum? Það er nákvæmlega sama athöfnin sem fer fram.