[12:12]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það vill svo heppilega til að ég er nýbúin að hlusta tvo fyrirlestra um þessi mál og ég get útskýrt það í fljótu bragði svo að það ofbeldi sem er hættulegast börnum og unglingum samkvæmt skoðun þeirra sérfræðinga sem fjalla um málið er það ofbeldi þar sem þau geta sett sig inn í málið. Þar sem t.d. það er boðberi réttlætisins sem beitir ofbeldi til þess að ná fram réttlæti og að hið góða geti sigrað og þetta sé raunveruleg manneskja sem viðkomandi getur sett sig í spor. Um leið og þetta eru orðnar ævintýrafígúrur eða teiknimyndafígúrur þá kemur ákveðin fjarlægð sem talið er af fagmenntuðu fólki á þessu sviði að sé ekki eins háskalegt þar sem þeir unglingar og krakkar sem eru að horfa á þetta sjá sig ekki alveg sem útflattan kött. Það bara vill svo heppilega til að í Tomma og Jenna virðast börn ekki setja sig eins í spor þeirra. Það eru til heilmiklar rannsóknir um þetta. Mér þótti þetta mjög forvitnilegt og skýra margt varðandi ofbeldi. Hvers vegna ákveðin tegund af ofbeldi þar sem börn og unglingar geta beinlínis séð sig sem góða karlinn að beita ofbeldi í nafni réttlætis þykir það háskalegasta. Þetta hefur sem betur fer verið rannsakað og skoðað og það þykja vera einhverjar tölfræðilegar upplýsingar sem renna stoðum undir þetta mat. Ég er ekki sérfróð á þessu sviði en ég vil koma þessum sjónarmiðum á framfæri. Ekki það að ég vilji verja Tomma og Jenna undir drep en ég þóttist góð að fá nokkrar skýringar á þessu.
Ég skal hins vegar slást í hóp með hv. þm. telji hann þetta grundvallaratriði til að við getum varist ofbeldi.