Skýrslur háskólans um EES og ESB

42. fundur
Fimmtudaginn 24. nóvember 1994, kl. 14:00:43 (1944)


[14:00]
     Guðný Guðbjörnsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég harma það mjög sem háskólakennari hvers konar ummæli eru hér höfð um sérfræðiskýrslur háskólans, einkum frá hv. þm. Páli Péturssyni. Kannski þetta viðhorf eigi sinn þátt í því hvernig fjárveitingum til háskólans er nú háttað.
    Efnislega tek ég undir þá gagnrýni að það séu óforsvaranleg vinnubrögð að kynna skýrslur í utanrmn. sem trúnaðarmál og kynna þær síðan á opnum stjórnmálafundi.