Þuríður Pálsdóttir fyrir DO, Drífa Hjartardóttir fyrir ÞorstP

43. fundur
Mánudaginn 28. nóvember 1994, kl. 16:36:11 (1983)



     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 24. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Þuríður Pálsdóttir yfirkennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv.``



    Þuríður Pálsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.


    Borist hefur annað bréf, dags. 24. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum óska ég eftir því að 1. varaþm. Sjálfstfl.

í Suðurlandskjördæmi, Drífa Hjartardóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Virðingarfyllst,

Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl.``



    Drífa Hjartardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.