Fyrirspurn um launaþróun sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga

43. fundur
Mánudaginn 28. nóvember 1994, kl. 16:44:09 (1988)


[16:44]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir viðbrögð hv. þm. Ég tel að það sé eðlilegt að fara svona að og ég mun kappkosta að svara þessari fsp. á næstu dögum enda verði henni breytt og tel að það geti gerst í þessari viku. Það eru úrræði í þingsköpum til þess að taka mál upp eins og þar er lýst en ég vil þó segja og vekja athygli á því að ég er ekki viss um að við leysum, hvorki þessa vinnudeilu né aðrar með því að ræða þær efnislega hér á hinu háa Alþingi. En ég mun að sjálfsögðu reyna að svara fsp. sem allra fyrst og um leið og upplýsingar liggja fyrir.