[18:07]
Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Það er rétt að um skeið hefur verið til athugunar í heilbrrn. hvað hægt sé að gera til úrbóta í málefnum heyrnarlausra og heyrnarskertra og þá sérstaklega hvað varðar tölvubúnað fyrir textasíma. Menn hafa skoðað ýmsar lausnir í þeim efnum, m.a. sérstakt tölvutæki sem Frakkar tóku nýlega í notkun í staðinn fyrir símaskrár og sendu öllum símnotendum. Við nánari athugun kom í ljós að þessi tækni, þó að hún væri nokkuð fullkomin, uppfyllti ekki þær kröfur sem þyrfti að gera í þessu sambandi hér á landi svo niðurstaðan varð sú að hæstv. fyrrv. ráðherra tók ákvörðun um að biðja um að boðin yrðu út 200 tæki af þessu tagi sem hv. fyrirspyrjandi lýsti.
Það er rétt sem hann sagði að lægsta tilboðið í þessi 200 tæki var upp á 18,6 millj. kr. og er nokkuð síðan tilboðin voru opnuð. Ég hef látið athuga möguleika á að sinna þessu. Það var ekki Tryggingastofnun ríkisins sem stóð að þessu útboði, það var ekki gert ráð fyrir því að Tryggingastofnun ríkisins greiddi þetta heldur Heyrnar- og talmeinastöðin. Staða Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar er sú að hana skortir nokkuð upp á að eiga fjármuni fyrir rekstri stöðvarinnar á þessu ári og er það vandamál sem þarf að leysa. En það er því miður ekkert fé til reiðu í heilbr.- og trmrn. til þess að greiða þennan kostnað og er verið að leita leiða til þess að það verði hægt að gera það væntanlega á næsta ári en það var heldur ekki gert ráð fyrir því í fjárlagatillögum ráðuneytisins að þessi kostnaður yrði greiddur með hækkaðri fjárveitingu til Heyrnar- og talmeinastöðvar eins og gera þarf.
Ég ítreka það, virðulegi forseti, að hér er ekki um að ræða kostnað sem gert er ráð fyrir að Tryggingastofnun ríkisins beri heldur Heyrnar- og talmeinastöðin og á yfirstandandi ári eru ekki fjárveitingar til Heyrnar- og talmeinastöðvar fyrir þessum kostnaði og verður því að gera ráðstafanir til þess að afla þess fjár á næsta ári eða í fjáraukalögum þessa árs.