[13:54]
Halldór Ásgrímsson :
Virðulegur forseti. Ég vildi aðeins í örstuttu máli gera grein fyrir afstöðu Framsfl. til þessa stóra máls. Á nýafstöðnu flokksþingi okkar ályktuðum við um þetta mál og segir um það svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Seint á síðasta ári lauk sjö ára Úrúgvæ-samningalotu GATT. Frá og með næstu áramótum mun nýrri alþjóðastofnun, Alþjóðaviðskiptastofnuninni, ætlað að taka við af GATT sem megineftirlitsstofnun alþjóðaviðskipta. Framsfl. er hlynntur markmiðum samningsins og aðild Íslands að stofnuninni. Flokksþingið leggur mikla áherslu á að tryggja starfsskilyrði þeirra atvinnugreina sem lenda í aukinni samkeppni í kjölfar meira frelsis í alþjóðaviðskiptum.``
Í stuttu máli þá erum við hlynntir aðild Íslendinga að þessari stofnun enda er það mjög nauðsynlegt fyrir okkur að vera aðilar að stofnun sem þessari og samningi sem þessum vegna þess hve háðir við erum utanríkisviðskiptum. Annað kemur nánast ekki til greina. Það er ekki aðeins á sviði iðnaðarmála, það er ekki síst á sviði sjávarútvegsmála sem við munum njóta þessa samnings.
Það er hins vegar verulegur ótti í ýmsum starfsgreinum ekki síst landbúnaði vegna þeirra starfsskilyrða sem þessar greinar munu þurfa að búa við eftir að samningurinn tekur gildi. Það hefur ekkert komið enn þá fram hér á Alþingi um það hvernig þessum málum verður háttað og ég vænti þess að þau mál komi fram á næstunni en endanleg afstaða okkar til þessa máls mun að sjálfsögðu mjög ráðast af því að bærileg sátt geti tekist um það hvernig þessi starfsskilyrði verða innan ramma samningsins. Framkvæmdin skiptir afar miklu máli og ég vænti þess að ríkisstjórnin leggi sig fram um að skapa bærilega sátt hér á Alþingi um það mál þannig að þessar atvinnugreinar geti unað við það. Það á að sjálfsögðu að hafa hagsmuni landbúnaðarins þar í fyrirrúmi og jafnframt hagsmuni neytenda, ég tek undir það, en það á ekki að vera markmið með þessum samningi að opna hér í verulegum mæli fyrir innflutning á landbúnaðarvörum.
Það á að vera markmið að við höldum uppi öflugum landbúnaði sem skapar mörgu fólki atvinnu og er lífsnauðsynlegur fyrir Íslendinga. Ég treysti því að hæstv. utanrrh. leggi sig fram um að ná samstöðu hér á Alþingi um það.