Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 14:27:05 (2039)


[14:27]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. svör hans. Það er eitt sem út af stendur. Mig langar til þess að biðja hæstv. ráðherra um að staðfesta það hvort það ríkir sátt innan ríkisstjórnarinnar um þær niðurstöður sem nú eru að verða hjá þessari nefnd og hvort það megi skilja svör hans svo að ríkisstjórnarflokkarnir hafi náð samkomulagi um það hvaða leið þeir muni styðja, þeir tveir flokkar sem standa að

hæstv. ríkisstjórn. Það er grundvallaratriði. En fyrir okkur þingmenn sem eigum að fjalla um þetta frv. af einhverju viti er það auðvitað brýnt að við sjáum sem fyrst þær upplýsingar sem verða lagðar til grundvallar til þess að við getum vitað um hvað málið snýst að þessu leyti.