Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 14:28:09 (2040)


[14:28]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan hefur nefndin ekki lokið störfum nú. Auðvitað eru uppi ýmis álitamál. Þetta er flókið mál. Þess vegna er störfum nefndarinnar ekki lokið. En það verður farið nákvæmlega yfir tilboð eða niðurstöður Norðmanna og þessum málum verður hraðað eins og kostur er. Það hefur síður en svo staðið upp á nefndarmenn í því. En ég ítreka það sem ég sagði áðan: Við erum fáliðaðir hér á landi og hljótum auðvitað að athuga vel okkar gang áður en frá þessum málum verður gengið af því að þau eru viðurhlutamikil og af því að þau skipta máli.