Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 15:13:15 (2056)


[15:13]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Auðvitað er það rangt hjá hv. þm. og hann veit betur. Auðvitað var unnið af íslenskum embættismönnum í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þetta á hv. þm. að vera kunnugt og ástæðulaust að gefa annað í skyn. Hitt má vera að eitt af þeim skilyrðum sem Framsfl. hafi sett fyrir stuðningi við málið hafi verið að ríkisstjórnin næði öllu sínu fram í GATT-samningunum og væri fróðlegt að fá að vita hvort svo sé.