Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 16:04:53 (2071)


[16:04]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það eru fullkomin ósannindi hjá þingmanninum að ég hafi sagt að það lægi ekki á að embættismannanefndin skilaði af sér. Ég tók skýrt fram að hún mundi skila af sér á næstu vikum og ég tók líka skýrt fram að málið yrði ekki afgreitt úr utanrmn. fyrr en sú niðurstaða lægi fyrir. Hv. þm. hefur æ ofan í æ haft uppi sömu ósannindin og er kannski tími til kominn að veita sérstaka áminningu af því tilefni.