Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 16:05:25 (2072)


[16:05]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Á morgun fær hæstv. landbrh. á borðið sitt vélritað hvað hann hefur sagt í dag. Mér er það alveg ljóst að hæstv. landbrh. man ekki hvað hann hefur verið að segja en hann getur lesið það á morgun og þá kemst hann að því hvort ég hef verið að fara með ósannindi eða ekki.
    Hins vegar árétta ég þá kröfu mína áður en þessari umræðu lýkur að hann komi með svar frá trúverðugum aðstoðarmanni sínum, skrifað á minnisblað upp í pontuna og lesi það og leggi inn í þessa umræðu hvernig háttað verði útflutningsbótunum.