Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 16:48:17 (2091)


[16:48]
     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er gott að heyra, ég var svo sem ekki alveg viss hvað hæstv. ráðherra var að segja. En vegna þess að hann nefndi refaskinnin og að það mundi líklega ekki vera hægt að setja útflutningsbætur á þau þá taldi ég að hann væri að segja okkur að þetta væri ekki heimilt en úr því að svo er þá held ég að það gleðji hjörtu ýmissa bænda. Spurningin er þá kannski sú næsta hvort ráðherra ætli að beita sér fyrir því að setja á einhvers konar útflutningsbætur á dilkakjöt.