[12:23]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Ég fagna þessari tillögu sem hér er flutt. Ég tel að það sé full ástæða til að huga að þessum málum. Það er að vísu athyglisvert að það skuli vera stjórnarþingmenn sem flytja tillöguna vegna þess að ég tel að það hljóti að lýsa því að þeir hafi ekki fengið hljómgrunn fyrir sínar skoðanir og vilja í viðræðum við sína félaga í stjórnarliðinu um það að taka á þessum málum. Ég held reyndar að það sé full ástæða til þess að þeir hafi flutt tillöguna því þau mál sem hafa átt að verða landsbyggðinni til framdráttar í stefnuyfirlýsingum ríkisstjórnarinnar hafa lítið skilað þeim málum áfram. Ég bendi t.d. á niðurgreiðslur á húshitunarkostnaði, sem var eitt af því sem ríkisstjórnin lýsti alveg sérstaklega yfir að ætti að taka á. Þar hefur mjög lítið miðað. Ég held að það muni ekki meiru heldur en sem svarar 40 millj. eða eitthvað svoleiðis á því sem greitt var niður hér á árunum 1991 og 1992 og því sem er greitt niður núna til húshitunar og það dregur ekki langt.
Ég held að ríkisstjórnin hafi hreinlega gefist upp við það að jafna húshitunarkostnaðinn, en það er mín skoðun að það séu fyrst og fremst svona aðalútgjaldaliðir fjölskyldnanna sem hið opinbera á að hafa afskipti af og sjá til að fólkið almennt í landinu öllu hafi svipaða möguleika til að hafa svipaðan kostnað af sinni framfærslu. Ég nefni orkuna og ég nefni t.d. símakostnað í því sambandi.
Af hverju að láta fara fram úttekt á þessu? Út af fyrir sig held ég að menn viti nokkurn veginn hvað kemur út úr slíkri úttekt og það eru allar upplýsingar til í þessum málum, en það sakar svo sem ekki að safna þeim saman þannig að menn geti skoðað þetta í heildina. Það er aftur á móti spurning því það kemur mjög skýrt fram hvað hv. flytjendur þessa máls leggja til. Þeir segja skýrt í tillögunni að ríkisstjórninni sé falið að grípa til ráðstafana í ljósi úttektarinnar sem miði að jöfnun verðlags á lífsnauðsynjum. Ég skil þetta þannig að ríkisstjórnin eigi að sjá til þess að það sé jafnt verðlag um allt land og það er auðvitað mikið í fang færst. Ég hef reyndar ekki trú á því að það takist en það mætti verða einhver atburður áður sem skipti þá verulegu máli og mér finnst að það þyrfti a.m.k. að geta orðið samstaða um það í hv. Alþingi og ríkisstjórnin ætti að geta framfylgt því að það yrði tekið á þessum höfuðþáttum sem menn hafa ráð á og þá er ég að tala um orkumálin og t.d. símann. Síðan er auðvitað erfitt að taka á í sambandi við vöruverðið því að ég á ekki von á því að menn séu tilbúnir að fara að greiða niður vöruverð á landsbyggðinni. Mig langar til þess að spyrja hv. þm., 1. flm. þessa máls, hvernig hann telur að það eigi að taka á því, að fá vöruverðið lækkað. Ég gæti vel ímyndað mér að það mætti með einhverjum hætti skipta sér af því hvernig heildsalar selja vöru sína, að það sé a.m.k. komið á jafnræði þannig að það sé ekki hægt að halda því fram að fólkið á landsbyggðinni sé að greiða niður vöruverð hér á höfuðborgarsvæðinu og kaupmenn úti um landið eigi aðgang að sama verði og aðilar hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er út af fyrir sig hugsanlegt að gera einhverja slíka hluti, en það mun auðvitað ekki tryggja það að vöruverð á landsbyggðinni lækki einhver ósköp, því þessi stóru fyrirtæki sem rekin eru á höfuðborgarsvæðinu og þar sem mikið þéttbýli er hafa auðvitað yfirburði til þess að bjóða lágt vöruverð. Ég hef því ekki alveg séð fyrir mér hvernig eigi að taka á þessum hlutum.
Síðan er auðvitað ekki því að leyna að landsbyggðarverslunin á í miklum erfiðleikum og hún mun auðvitað halda áfram að eiga í erfiðleikum. Nú er kominn upp nýr vandi sem er sá að það er farið að gefa möguleika á því að panta sendingar frá stórmörkuðum hér út á landsbyggðina og menn geta svo sem fengið einu sinni í mánuði pakkann sinn og þar með eru þeir að grafa gjörsamlega undan versluninni á því svæði sem þeir búa á. En þetta er orðið fyrir hendi sums staðar og ég á von á því að það muni aukast mjög á næstunni. Spurningin er hvernig landsbyggðarverslunin bregst síðan við þessu.
Ég held að þessi þróun verði ekki stöðvuð, en mér leikur forvitni á að heyra hvernig hv. flm. hafa
hugsað sér að það yrði tekið á þessu vandamáli landsbyggðarverslunarinnar. Það má auðvitað hugsa sér að gera ýmislegt. Við höfum haft sama verð á orku ef hún er seld á bensínstöðvum allt í kringum landið. Það hafa yfirvöld séð til á undanförnum mörgum árum, að það sé hægt að kaupa bensín á sama verði hvar sem maður keyrir um á landinu. En menn hafa ekki getað keypt raforku, menn hafa ekki getað fengið að tala í síma fyrir sama verð á landsbyggðinni eins og í þéttbýlinu. Þarna finnst mér að mönnum hafi skotist hér í hv. Alþingi því það er greinilega hægt að taka á málunum. Ég er ekki alveg jafnsannfærður um það hvernig á að jafna vöruverð í verslunum. En ég ætla sannarlega að styðja menn í því ef menn hafa tillögur sem hægt er að framfylgja af einhverri skynsemi í því efni.