Bygging kjötmjölsverksmiðju

49. fundur
Mánudaginn 05. desember 1994, kl. 15:41:58 (2188)


[15:41]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. sagði að það er mjög brýnt fyrir okkur nú þegar við höfum sett okkur það að reyna að leita fyrir okkur um útflutning á landbúnaðarvörum okkar á vistvænum grundvelli að við hugum vel að því að við séum til fyrirmyndar í sambandi við annaðhvort úrvinnslu á sláturúrgangi eða því um líku eða förgun á slíku sem ekki stafar mengunarhætta af og tek undir ummæli hv. þm. í þeim efnum. Ég tek líka undir að það er auðvitað mjög ákjósanlegur staður ef niðurstaðan verður sú, sem ég skal síður en svo útiloka, að verksmiðjan verði ein að henni sé valinn staður á miðju Suðurlandsundirlendi sem er auðvitað mjög eðlileg staðsetning og skynsamleg.