Lyfjaverslun Íslands hf.

50. fundur
Þriðjudaginn 06. desember 1994, kl. 14:32:48 (2211)


[14:32]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það mun vera rétt hjá hæstv. ráðherra að þetta gildir ekki fyrr en eftir nokkra mánuði, þ.e. ekki á næsta ári, að menn fá þennan skattafslátt. Það þarf að eiga hlutabréfin yfir tvenn áramót. En það breytir ekki því að menn geta fljótlega farið að huga að því og í síðasta lagi eftir tvö ár að selja þessi hlutabréf til miklu, miklu stærri aðila sem mundi þá safna eignaraðildinni saman. Ég sé því ekki hvernig hæstv. ráðherra ætlar að tryggja það að þetta verði eitthvert almenningshlutafélag í framtíðinni.