[22:07]
Kristín Ástgeirsdóttir :
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð, atriði sem ég gleymdi í dag. Ég get tekið undir það með hv. síðasta ræðumanni að mál er að linni í einkavæðingaráformum ríkisstjórnarinnar og það hefur komið fram hjá mörgum ræðumönnum. En annað af því sem hefur náttúrlega vakið athygli okkar hér í þessari umræðu er hin algera þögn Alþfl. sem hér ríkir og við hljótum að spyrja hver sé afstaða Alþfl. ( JónK: Hvar er hann?) Ja, það væri fróðlegt að vita, það sést ekki einn einasti alþýðuflokksmaður. (Gripið fram í.) Nei, þeir eiga enn þá nokkra fulltrúa hér á þingi þó svo að ekki horfi vel í þeim efnum fyrir þá, en við hljótum að spyrja. Hér hefur farið fram ítarleg umræða um einkavæðingu ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili sem Alþfl. hefur samþykkt hingað til, það er alveg ljóst að hann hefur samþykkt það hingað til, þar með talinn hv. 12. þm. Reykv., Jóhanna Sigurðardóttir. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt hana andmæla hér nokkru sinni eða nokkurn tíma einkavæðingu eða einkavæðingaráformum þó hún þykist ekki hrifin af þeim áformum núna. En það væri afar fróðlegt að fá hér fram sjónarmið Alþfl. En þess er víst ekki að vænta.
En hitt atriðið sem ég ætlaði aðeins að gera að umtalsefni er atriði sem hæstv. fjmrh. kom inn á í ræðu sinni í dag varðandi áhrif og árangur af einkavæðingu eins og þau atriði eru skýrð í skýrslu Ríkisendurskoðunar og það er nefnilega mjög athyglisvert sem þar kemur fram. Ríkisendurskoðun talaði við aðila sem hafa tekið við þessum fyrirtækjum sem hafa verið seld og þar koma fram atriði sem hljóta að vera umhugsunarverð fyrir ríkisstjórnir og stjórnendur ríkisstofnana. Nú ætla ég ekki að draga í efa að menn hafi látið í ljós þessar skoðanir við fulltrúa Ríkisendurskoðunar. Hér segir á bls. 14, með leyfi forseta, --- ég ætla að beina spurningu til hæstv. fjmrh. --- að hjá þessum aðilum hafi komið fram að þær breytingar sem orðið hafi hafi m.a. komið fram í meiri ábyrgðartilfinningu stjórnenda og starfsmanna í sambandi við rekstur og afkomu fyrirtækisins sem þeir starfa hjá og í öðru lagi skjótvirkari ákvarðanatöku. Stjórnendur einkavæddra fyrirtækja sem rætt var við töldu að ríkisfyrirtæki hefðu liðið fyrir seinvirka ákvarðanatöku sem hefði m.a. valdið stöðnun og leitt til úreltra vinnubragða. Nokkuð var um að stjórnarmenn í ríkisfyrirtækjum væru taldir hræddir við að taka áhættu. Þetta þykja mér afar athyglisverðar fullyrðingar og umhugsunarverðar fyrir ráðherra og stjórnendur ríkisstofnana og ég mundi halda að nú væri það hlutverk fjmrh. og annarra ráðherra að gera úttekt á þessu. Er það virkilega þannig að ríkisfyrirtæki líði fyrir seinvirka ákvarðanatöku og þau séu stöðnuð og stundi úrelt vinnubrögð? Þetta er ekki fallegur dómur yfir ríkisfyrirtækjum og þetta kallar auðvitað á ítarlega skoðun. Er það virkilega svo að þessi fyrirtæki sem sum hver voru rekin með dágóðum hagnaði, þar hafi gætt stöðnunar og seinvirkra vinnubragða. Eru þær stjórnir, sem Alþingi er að kjósa yfir ýmsar ríkisstofnanir, seinvirkar til ákvarðana? Hvað er eiginlega verið að fullyrða hér? Þetta eru engar smáfullyrðingar sem koma hér fram þegar maður rýnir betur í þetta. Ég held að þetta sé mjög umhugsunarvert reyndar bæði fyrir Alþingi og eins og ég hef nefnt hér ráðherra og stjórnendur ríkisstofnana og væri mikil þörf á að kanna þetta betur.
Nú hafa menn mikið rætt um gæðastjórnun og hæstv. fjmrh. hefur staðið fyrir ráðstefnum um stjórnun ríkisfyrirtækja og eftir því sem ég best veit hefur fjmrn. undirbúið endurbætur í þessum efnum og þetta er eins og ég nefni hér mjög til þess að skoða betur ef þetta reynist satt. Mér finnst þetta reyndar að mörgu leyti ótrúlegt vegna þess að við vitum að margar ríkisstofnanir eru mjög vel reknar og skila miklum ágóða inn í ríkissjóðs og hér hefur t.d. verið nefndur Póstur og sími sem dæmi um slíkt en mér þætti ástæða til þess að skoða þetta betur.
Ég vil líka benda á það að á sömu blaðsíðu þar sem Ríkisendurskoðun er að tala um áhrif og árangur af einkavæðingu, þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
,,Bein þátttaka hins opinbera í atvinnurekstri hefur aldrei verið mjög víðtæk hér á landi`` og ég tek það sem svo að þetta er skoðun Ríkisendurskoðunar að væntanlega í samanburði við aðrar þjóðir er ekki hægt að segja sem svo að þátttaka ríkisins í atvinnurekstri sé mikil. Víða er hún væntanlega meiri og við þekkjum það að í ýmsum löndum fóru menn þá leið að þjóðnýta t.d. námur, járnbrautakerfi og ýmislegt annað. Það var á tímabili á 2., 3. og 4. áratug þessarar aldar sem það gekk yfir mikil þjóðnýtingaralda og menn sögðu sem svo að þessar auðlindir væru þjóðareign og að flutningakerfi ætti að reka í þágu almennings og þau ættu að vera í eigu almennings en einkavæðingn hefur nú m.a. beinst að þessum sviðum atvinnulífsins. En mér þætti fróðlegt að vita hvort hæstv. fjmrh. er sammála þessari fullyrðingu vegna þess að hann hefur verið og var talsmaður þess að báknið viki burt og hefur beitt sér fyrir einkavæðingu. Maður spyr sig auðvitað að ef það er svo að atvinnurekstur hins opinbera á Íslandi sé lítill miðað við það sem
gerist hjá öðrum þjóðum, er þá einhver ástæða til þess að vera að einkavæða? Ég tók það fram í dag að mér finnst að finna í þessari skýrslu ýmis dæmi um einkavæðingu sem fyllilega á rétt á sér en mergurinn málsins er sá að menn þurfa að greina milli þess hvenær ríkið er í óeðlilegri samkeppni við aðila úti í þjóðfélaginu eins og mér finnst t.d. að embætti húsameistara ríkisins sé og nefni ég þá stofnun enn einu en það er einhvern veginn þannig að á þeirri stofnun má alls ekki snerta. Það er ekki hróflað við þeirri stofnun og væri nú fróðlegt að fá skýringu á því hvernig á því stendur. En hins vegar eru svo fyrirtæki, sem þjóna öllum almenningi, fyrirtæki sem eru þau einu sinnar tegundar á landinu og slík fyrirtæki er eðlilegt að reka í ríkiseign og ég vil nefna þar sem dæmi Sementsverksmiðju ríkisins sem er sú eina sinnar tegundar og er ekki í neinni samkeppni og hvers vegna á þá að vera að einkavæða? Er þá ekki eðlilegt að ríkið reki slík fyrirtæki sem þjóna öllum almenningi á landinu?
Ég vildi aðeins bæta þessu hér við umræðuna, virðulegi forseti, og vænti þess að fá svör við þessum atriðum frá hæstv. fjmrh.