Lyfjaverslun Íslands hf.

50. fundur
Þriðjudaginn 06. desember 1994, kl. 23:11:31 (2267)


[23:11]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir þetta andsvar því samkvæmt einkunnabók sem hann var að gefa út þá hefur þó ríkisstjórnin náð prófinu og það er nú umfram allt að ná prófi, svoleiðis að ég get verið honum þakklátur fyrir þennan dóm sem hann hefur látið falla. Ég er ekki sammála honum, ég tel að ríkisstjórnin eigi að fá hærri einkun, en ég hlýt samt að segja að þegar jafnharður prófdómari og hv. þm. á í hlut þá hlýtur viðkomandi ríkisstjórn að vera nokkuð sæl með niðurstöðuna.