Verkfall sjúkraliða

51. fundur
Miðvikudaginn 07. desember 1994, kl. 13:37:38 (2308)

[13:37]
     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. fjmrh. og fyrirspurn mín er stutt og einföld. Nú hefur verkfall sjúkraliða staðið vikum saman og stefnir í hreint óefni á sjúkrastofnunum landsins. Ég spyr: Hvað ætlar hæstv. fjmrh. að gera til þess að leysa þetta mál?