[13:39]
Guðrún Helgadóttir :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar í þessu máli er mikil. Þetta mál verður að leysa. Við vitum öll að sjúkraliðar hafa búið við þau launakjör sem eru undir öllu velsæmi. Hæstv. forsrh. hefur hvað eftir annað gefið í skyn að nú sé hagur landsmanna á slíkum batavegi að það verði svigrúm til þess að bæta kjörin. Þess vegna er tími núna til þess að leysa þetta mál. Það er beinlínis á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar að neyðarástand skapist ekki frekar en þegar er orðið á sjúkrastofnunum landsins. Það er mikil ábyrgð að þetta verkfall, sem er svo sannarlega réttlætanlegt, skuli bitna á þeim sem allra síst þola slíkt og ég treysti því og vona að hæstv. ríkisstjórn gangi nú í það með hæstv.
fjmrh. í broddi fylkingar að leysa þetta mál nú í vikunni.