Húsaleigubætur og búsetaréttur

51. fundur
Miðvikudaginn 07. desember 1994, kl. 13:45:29 (2314)


[13:45]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svörin og vona að það gangi eftir að það náist niðurstaða í þetta mál á næstu dögum því að það er alveg sama hvað svo sem hefur verið rætt þegar vaxtabótakerfið var tekið upp að varðandi Búseta þá var einfaldlega ekki séð fyrir endann á því máli og þetta varð niðurstaðan í vor þegar lögin um húsaleigubætur voru afgreidd að ganga í þetta mál og koma því á hreint. Þess vegna vil ég leggja á það mikla áherslu að það náist niðurstaða varðandi þetta til þess að þessir aðilar, þetta fólk sem hér um ræðir geti notið húsaleigubóta þegar þær taka gildi.