Framlag til vegamála

51. fundur
Miðvikudaginn 07. desember 1994, kl. 14:09:18 (2330)


[14:09]
     Jóhann Ársælsson :
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir hans síðustu orð. Ég held að það sé full ástæða til að taka eftir því að hann sagði að það mætti líta þannig á að þessi skerðing þarna væri greiðsla upp í það sem framkvæmt hefur verið á vegum framkvæmdaátaksins og það er mjög mikilvægt að þannig sé litið á málið. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að þannig eigi að líta á málið. Allar skerðingar á mörkuðum tekjustofnum til Vegasjóðs hljóta að eiga að dragast frá þeim lántökum sem þarna hefur verið talað um.