Þróunarsjóður sjávarútvegsins

51. fundur
Miðvikudaginn 07. desember 1994, kl. 14:19:01 (2334)


[14:19]
     Jóhann Ársælsson (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Er ekki von á að hæstv. sjútvrh. birtist aftur innan skamms? Verður hann mjög lengi erlendis? Ég tel að þessu máli hasti ekki svo að ekki sé hægt að bíða eftir hæstv. ráðherra til þess að honum gefist tækifæri til að gera grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málum sem full ástæða er til. Með fullri virðingu fyrir hæstv. starfandi sjútvrh. mun hann ekki geta komið algerlega í stað hæstv. sjútvrh. í þessari umræðu til að ræða stefnu ríkisstjórnarinnar í málunum.