Sameining Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 10:47:24 (2366)


[10:47]
     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem fram kom hjá síðasta ræðumanni að ég er afskaplega þakklátur og reyndar stoltur af þátttöku fulltrúa Kvennalistans í landbn. og störf hennar þar eru vissulega með þeim hætti að það ætti frekar að verða til þess að auka áhuga fyrir því að auka hlutdeild kvenna í starfi bændasamtakanna í framtíðinni.