Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:03:29 (2374)


[11:03]
     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það kom greinilega fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns að skilaboð mín til þingsins við umræðuna hafa komist rétt til skila. Ég hef hins vegar kannski ekki tekið það nógu skýrt fram að ég dró einungis þessa tillögu til baka til 3. umr. Tillagan kemur þá til afgreiðslu hér og liggur þannig alveg ljóst fyrir að hún er ekki dregin til baka fyrir fullt og allt.
    Svo ég árétti það sem ég sagði í framsöguræðu minni þá er gerð tillaga um að þessi tímasetning, 1. apríl, falli niður vegna þess að Framleiðsluráð hverju sinni verður væntanlega kjörið í mars að afloknu þingi þessara nýju heildarsamtaka bænda og auðvitað tekur það til starfa þá en ekki 1. apríl eins og tillagan gerir ráð fyrir.