Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:18:51 (2380)


[11:18]
     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það liggur náttúrlega í hlutarins eðli að hvorki ríkisstjórnin né neinn sá sem hefur hér rétt og möguleika á því að flytja sitt mál hefur kastað neinum slíkum tækifærum fyrir róða þó að þessar breytingar hafi verið gerðar á búvörulögunum sem við höfum fjallað um. Það er að sjálfsögðu grundvallarmisskilningur og mér finnst heldur miður að menn skuli vera að teygja afgreiðslu þessara mála með sama hætti og hv. síðasti ræðumaður gerði inn á einhvern pólitískan vettvang.